Það var sannkallaður toppslagur í Ásgarði í kvöld þegar Stjarnan og KR, tvö af þremur toppliðum Domino’s deildar karla mættust þar í kvöld. Fyrir leikinn höfðu bæði lið unnið 8 leiki af 10 og sátu þau jöfn Tindastóli í toppsætum deildarinnar. Eftir afar jafnan og æsilegan leik framan af er skemmst frá því að segja að Sjörnumenn hreinlega völtuðu yfir KR-inga og unnu afar góðan 15 stiga sigur, 97-82.
Lykillinn
Eftir að leikurinn hafði verið jafn nánast allan leikinn leiddu KR-ingar með 5 stigum fyrir lokafjórðunginn, 63-68. Í fjórða leikhluta misstu Íslandsmeistararnir hins vegar algerlega dampinn og Stjörnumenn gengu á lagið. Garðbæingar unnu lokafjórðunginn 34-14 gegn pirruðum KR-ingum þar sem Justin Shouse fór hamförum.
Hetjan
Það er erfitt að gera upp á milli þeirra Justin Shouse og Hlyns Bæringssonar í vali á manni leiksins. Hlynur hélt Stjörnunni algerlega á floti í fyrri hálfleik með 18 stigum og 5 fráköstum, og lauk leik með 31 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar sem gaf honum 41 í framlagsstig. Justin hins vegar sprakk algerlega út í fjórða leikhluta. Shouse skoraði körfur í öllum regnbogans litum og drap hreinlega leikinn þegar KR-ingar gáfu færi á sér. Þeir félagarnir deila því titlinum að þessu sinni.
Eftir leik
Eftir leik er ljóst að Stjarnan deilir toppsætinu með Tindastóli yfir jólin, en Vesturbæingar sitja í 3. sæti. Sannkölluð bomba til að ljúka árinu hjá Garðbæingum, en KR-ingar hefðu viljað enda á betri nótum. Þórir Þorbjarnarson og Cedrick Bowen voru þeirra stigahæstir með 16 stig.
Umfjöllun, viðtöl / Elías Karl
Myndir / Bára Dröfn
Viðtöl:




