Stjörnuleikur kvenna fer fram í Ásgarði á morgun, laugardaginn 15. janúar, og er ljóst hvaða leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í leiknum. Lið Reykjaness mætir liði Landsins og eftirtaldir leikmenn skipa liðin:
Byrjunarliðin voru kosin á netinu og þjálfarar liðanna völdu svo sjö leikmenn til viðbótar í hvort lið.
Lið Reykjaness:
Byrjunarlið kosið af netverjum:
Íris Sverrisdóttir – Haukar
Pálína Gunnlaugsdóttir – Keflavík
Birna Valgarðsdóttir – Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir – Keflavík
Jacquline Adamshick – Keflavík
Jón Halldór þjálfari liðs Reykjaness valdi eftirfarandi leikmenn til viðbótar:
Ingibjörg Jakobsdóttir – Keflavík
Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Haukar
Gunnhildur Gunnarsdóttir – Haukar
Kathleen Patricia Snodgrass – Haukar
Ólöf Helga Pálsdóttir – UMFN
Shayla Fields – UMFN
Berglind Anna Magnúsdóttir – UMFG
Lið Landsins:
Byrjunarlið kosið af netverjum:
Hildur Sigurðardóttir – KR
Slavica Dimovska – Hamar
Margrét Kara Sturludóttir – KR
Signý Hermannsdóttir – KR
Jaleese Butler – Hamar
Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfari liðs Landsins valdi eftirfarandi leikmenn til viðbótar:
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir – KR
Kristrún Sigurjónsdóttir – Hamar
Natasha Harris – Fjölnir
Fanney Lind Guðmundsdóttir – Hamar
Bergþóra Tómasdóttir Holton – Fjölnir
Berglind Gunnarsdóttir – Snæfell
Helga Einarsdóttir – KR
Dagskráin á laugardaginn hefst klukkan 14:30 með 3-stiga skotkeppni.
Aðgangseyrir er ókeypis.




