HomeFréttirStjörnuhelgin í NBA deildinni

Stjörnuhelgin í NBA deildinni

Stjörnuhelgin er hafin í NBA deildinni en í gærkvöldi fór fram troðslukeppnin sem kennd er við Sprite og "Rísandi stjörnur" sem eitt sinn var kallað Rookie Challenge.  Það var Jeremy Evans sem vann troðslukeppnina með minnsta mun, 1% fleiri atkvæði en Chase Budinger en þetta árið voru það áhorfendur sem kusu alfarið um bestu troðsluna.  
 
Evans vann með troðslu þar sem hann tróð tveimur boltum í körfuna þegar hann stökk yfir sitjandi aðstoðarmann sinn en troðsluna má sjá hér

 

Kevin Love gerði sér lítið fyrir og vann þriggja stiga skotkeppnina eftir einvígi við Kevin Durant .  Kevin Love fékk 17 stig í úrslitaumferðinni en Kevin Durant fékk 14 stig.  Kevin Love hefur verið að skjóta 34,8% fyrir utan þriggja stiga línuna í deildinni í vetur sem verður að teljast ansi gott fyrir framherja í þessari sterku deild.  

 

Í leik rísandi stjarnanna í NBA deildinni var haft nýtt fyrirkomulag í ár þar sem skemmtikraftarnir Shaquile O’Neal og Charles Barkley fengu að velja sér leikmenn í sitt hvort liðið af þeim leikmönnum sem eru nýliðar eða á öðru ári í deildinni.  Af þeim leikmönnum var Kyrie Irving atkvæðamestur í leiknum með 34 stig og 9 stoðsendingar.  Það sem vakti hins vegar hve mesta athygli í leiknum var samleikur Ricky Rubio og Blake Griffin sem fóru á kostum í leiknum og skemmtu áhorfendum vel. Hægt er að sjá helstu atriði leiksins hér

 

Tony Parker, leikmaður San Antonio Spurs, vann hæfileikakeppni stjörnuhelgarinnar þar sem bakverðir deildarinnar keppa í tímaþraut um völlinn.  Þar kepptu helstu leikstjórnandar deildarinnar, Deron Williams, John Wall, Rajon Rondo og Kyrie Irving en það var Tony Parker sem endaði með besta tímann.  Hægt er að sjá helstu tilþrifin hér.

 

Í kvöld er svo stærsti viðburður helgarinnar þegar stjörnuleikurinn sjálfur fer fram og er hann sýndur á stöð 2 sport en útsendingin hefst klukkan korter yfir eitt eftir miðnætti að íslenskum tíma.  

Fréttir
- Auglýsing -