spot_img
HomeFréttirStjörnudagur KKÍ í dag

Stjörnudagur KKÍ í dag

11:00
{mosimage}

(Frá Stjörnuleiknum í fyrra) 

Mikið verður um dýrðir í Sláturhúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ í dag þegar árlegur Stjörnudagur KKÍ fer fram. Karla- og kvennalandslið Íslands munu þá mæta sérvöldum úrvalsliðum íslenskra- sem erlendra leikmanna. Kvennaleikurinn hefst kl. 13.30 og karlaleikurinn hefst kl. 15.30 eða strax að kvennaleiknum loknum. Frítt verður inn á Stjörnudaginn svo það erum að gera að fjölmenna. 

Nú þegar hafa átta háloftafuglar skráð sig í troðslukeppnina sem verður í hálfleik karlaleiksins en 100.000,- kr. peningaverðlaun eru í boði fyrir glæsilegustu troðslu dagsins. 

Karfan.is verður með leikinn í beinni útsendingu og verður hægt að smella hér til þess að sjá útsendinguna rétt fyrir 13.30. Við setjum þó varann á að ef netsamband verður til trafala mun netútsendingin laskast. Hins vegar verða báðir leikirnir teknir upp svo hægt verður að skoða þá hér ef útsending bregst. 

Góða skemmtun á Stjörnudegi KKÍ!

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -