HomeBónus deildinBónus deild kvennaStjórn Keflavíkur svarar fyrir fjarveru þjálfarans

Stjórn Keflavíkur svarar fyrir fjarveru þjálfarans

Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur sent frá sér opinbera yfirlýsingu vegna fréttaflutnings af fjarveru aðalþjálfara liðsins Harðar Axels Vilhjálmssonar í aðdraganda úrslitakeppninnar. Tilefnið er fjarvera þjálfarans síðustu þrjá daga fyrir fyrsta úrslitakeppnisleikinn sem liðið tapaði gegn KR í gærkvöldi, en stjórnin segir að full samstaða ríki um málið innan félagsins.

Í yfirlýsingunni kemur fram að stjórninni hafi verið fullkunnugt um fjarveruna með löngum fyrirvara. Var hún þegar kynnt fyrir forráðamönnum áður en samningar voru undirritaðir síðasta sumar. Segir stjórnin að fjarveran hafi verið skipulögð með góðum fyrirvara og með þeirra fulla samþykki.

„Hjá okkur er körfuboltinn aðalatriðið,“ segir í tilkynningunni. Stjórnin leggur áherslu á að liðið haldi áfram ótrautt samkvæmt áætlun og stefni að hámarksárangri. Keflvíkingar hvetja stuðningsmenn til að mæta í Blue-höllina á laugardaginn til að styðja við bakið á liðinu.

Fréttir
- Auglýsing -