Stjarnan varð bikarmeistari í 9. flokki stúlkna í kvöld eftir sigur gegn Val í æsispennandi tvíframlengdum leik, 68-65.
Leikurinn var fyrri tveggja úrslitaleikja í kvöld, en í þeim seinni eigast einmitt við aftur Valur og Stjarnan, nema í 10. flokki drengja.
Fyrir leik
Á leið sinni í úrslitaleikinn hafði Valur lagt Keflavík með 70 stigum og Stjarnan hafði betur gegn Aþenu með 18 stigum.
Í deildarkeppni tímabilsins hefur Stjarnan ekki tapað leik eftir fyrstu 10 umferðirnar. Valur er þó í öðru sætinu á eftir þeim með fimm sigra í fyrstu 9 leikjum sínum.
Í tvígang hafa liðin mæst á tímabilinu og hefur Stjarnan því tvisvar haft sigur gegn Val. Með 17 stigum í Hlíðunum í október og svo aftur með 8 stigum í Garðabænum nú í lok janúar.

Gangur leiks
Stjarnan fer betur af stað í leiknum og leiðir með nokkrum stigum frá fyrstu mínútum. Valsliðið þó ekki langt undan og hreinlega óheppnar að hafa ekki sett fleiri stig á töfluna í fyrsta fjórðung, en staðan að honum loknum er 19-12 fyrir Stjörnuna.
Augljóst var fyrir leik að nokkur hæðarmunur væri á liðunum tveimur í dag, Stjarnan með stærra liðið. Þetta nýttu þær sér til þess að taka ógrynni af sóknarfráköstum í leiknum og því voru þær yfir nánast allan fyrri hálfleikinn, þrátt fyrir að vera ekki að skjóta boltanum neitt vel.
Valsstúlkur gefast þó ekki upp í fyrri hálfleiknum og undir lok hans ná þær loksins forystunni, staðan 23-24 þegar rúmar tvær mínútur eru eftir af öðrum fjórðung. Frekar ná þær ekki að ganga á lagið og munar þessu stigi á liðunum er þau halda til búningsherbergja í hálfleik, 25-26 fyrir Val.
Stigahæstar fyrir Stjörnuna í fyrri hálfleiknum voru Marín með 10 og Tara og Embla með 6 stig hvor. Fyrir Val var stigahæst Íris Lóa með 7 og Eyja og Rebekka með 6 stig hvor.
Stjarnan hefur seinni hálfleikinn af miklum krafti og nær að snúa taflinu sér í vil. Leiða lengst af í þei þriðja og eru níu stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 40-31. Valsstúlkur höfðu náð að herða sig nokkuð vel í seinni hálfleiknum og voru ekki að gefa eins mörg sóknarfráköst og í þeim fyrri. Þá gekk pressuvörn þeirra einnig oft ágætlega, þó Stjarnan hafi í nokkur skipti náð að nýta sér hana til ábata.
Stjarnan heldur forystu sinni allt þangað til það eru um þrjár mínútur til leiksloka. Með áræðni varnarlega og snöggu áhlaupi nær Valur aftur að jafna metin, 45-45. Leikar haldast svo æsispennandi fram á lokamínútuna, en undir lokin fá bæði lið tækifæri til að taka sigurinn, Valur þau álitlegri, en allt kemur fyrir ekki. Venjulegur leiktími endar 49-49 og það er framlengt.
Í framlengingunni skiptast liðin á körfum og er leikurinn áfram nokkuð jafn og spennandi. Einnig nokkuð harður, sem verður þess valdandi að bæði lið eru komin í bónus og skiptast á lokamínútunum á að setja sín stig af vítalínunni. Staðan lokinni framlengingu er 59-59 og því þarf aftur að framlengja.
Aðra framlenginguna opnar Eyja Garðarsdóttir á þrist fyrir Val, en Stjarnan nær að jafna leikinn aftur í næstu sóknum. Undir lokin er það svo Stjarnan sem er körfu á undan, en Valsstúlkum tekst illa að ná í forystuna aftur. Með stigi af vítalínunni frá Marín Ósk kemst Stjarnan þremur yfir þegar lítið lifir eftir af leiknum, 68-65. Þetta átti eftir að vera síðasta stig leiksins, þar sem tilraunir Vals klikkuðu á lokasekúndunum.

Stigahæstar
Fyrir Stjörnuna voru stigahæstar Embla Hrönn Amlin Sigurðardóttir sem var valin besti leikmaður úrslitaleiksins og Marín Ósk Finnsdóttir Thormar með 20 stig hvor. Fyrir Val var stigahæst Íris Lóa Hermannsdóttir með 17 stig og henni næst Eyja Garðarsdóttir með 15 stig.













