Stjarnan varð í kvöld bikarmeistari í 10. flokki stúlkna eftir öruggan sigur gegn KR í úrslitaleik, 58-127.
Leikurinn var sá fyrsti þessa vikuna af VÍS bikarúrslitaleikjum yngri flokka, en nú á eftir leikur Stjarnan/KFG við Selfoss í öðrum úrslitaleik í 12. flokki karla.
Fyrir leik
Á leið sinni í úrslitin hafði Stjarnan farið nokkuð örugglega í gegnum Keflavík í undanúrslitum á meðan KR vann Hauka í undanúrslitunum í jöfnum leik.
Í þessum flokki er Keflavík eina taplausa liðið á tímabilinu með 10 sigra. í öðru sætinu, með tvö töp er svo Stjarnan. Til þess að finna KR þarf að leita niður í 6. sæti fyrstu deildarinnar þar sem þær sitja með þrjá sigra og sjö töp eftir fyrstu 10 umferðirnar.
Liðin tvö hafa mæst í eitt skipti á tímabili. Þann 15. október, en þá hafði Stjarnan gífurlega öruggan sigur gegn KR í Garðabæ, 93-64.


Gangur leiks
Stjarnan virtist með góð tök á leiknum í upphafi. Spila fantavörn, bæði pressa allan völlinn og verjast svo vel á hálfum velli. Sóknin ágæt, en þær halda KR stigalausum fyrstu mínúturnar. Það var í raun ekki fyrr en undir lok fyrsta leikhluta sem KR virðist komast aðeins í takt við leikinn, en þá var Stjarnan komin langt yfir. Staðan 7-33 eftir fyrsta fjórðung. Stjarnan bætir enn í sarpinn undir lok fyrri hálfleiksins, þó KR virðist ganga aðeins betur að koma boltanum upp en í byrjun leiks. Leikurinn þó nánast farinn fyrir lok fyrri hálfleiksins, Stjarnan 40 stigum yfir, 25-65.
Stigahæstar fyrir Stjörnuna í fyrri hálfleiknum Eva með 21 og Berglind með 15 stig. Fyrir KR voru stigahæstar í fyrri hálfleiknum Sveindís með 10 og Rakel með 7 stig.
KR mæta að er virðist miklu líflegri inn í seinni hálfleikinn, en munurinn á liðunum helst þó nokkuð mikill. Stjarnan slakar ekkert á pressunni og hægt en örugglega bæta þær enn við forskot sitt í þeim þriðja. Virðist vera formsatriði fyrir lokaleikhlutann, 43-88.
Eftirleikurinn virtist einfaldur fyrir Stjörnuna þó ekki megi taka það af KR að þær börðust út leikinn. Niðurstaðan gífurlega öruggur sigur Stjörnunnar, 58-127.

Atkvæðamestar
Bestar í liði Stjörnunnar í dag voru Berglind Katla Hlynsdóttir með 36 stig, 5 fráköst, 8 stoðsendingar, 13 stolna bolta og Eva Ingibjörg Óladóttir með 31 stig, 8 stoðsendingar og 10 stolna bolta, en Berglind var að loknum leik valinn besti leikmaður úrslitaleiksins.
Fyrir KR var Rakel Þorvaldsdóttir atkvæðamest með 19 stig, 4 fráköst, 4 stoðsendingar og 4 stolna bolta.







