Teitur Örlygsson og liðsmenn hans í Stjörnunni lönduðu tveimur stigum í kvöld þegar botnlið KFÍ kom í heimsókn í Garðabæinn. Lokatölur í Ásgarði voru 83-75 Stjörnunni í vil sem með sigrinum hafa nú 16 stig í 6. sæti deildarinnar en KFÍ er sem fyrr á botninum með 6 stig.
Ráðleysisleg byrjun hjá báðum liðum í kvöld, 11 stig skoruð samtals fyrstu 5 mínútur leiksins. KFÍ gekk illa að sækja inn fyrir 3 stiga línuna án þess að fá dæmt á sig sóknarbrot, hvort sem er skref eða ruðningur. Þar af leiðandi reyndu þeir mikið fyrir utan þriggja stiga línuna með takmörkuðum árangi 1/8. Stjarnan keyrði hinsvegar nokkuð að körfunni með þokkalegum árangri og leiddu þeir 19 – 13 við lok fjórðungsins sem var heldur litlaus.
KFÍ hóf 2. leikhluta á 8-0 áhlaupi og komust yfir 19-21 þegar 3:30 mín. voru liðnar af fjórðungnum. Daníel Guðmundsson stoppaði áhlaup KFÍ með fyrstu 3 stiga körfu Stjörnunnar í leiknum og fljótlega komast heimamenn aftur í 6 stiga forystu. Marco sest á bekkinn eftir að hafa fengið sína 3ju villu í viðskiptum sínum við Renato í liði Stjörnunnar en sem fyrr segir sótti Stjarnan duglega inn í teiginn. Jafnvægi var með liðunum það sem eftir lifði fjórðungs og héldu heimamenn sömu forystu og þeir byrjuðu með. Staðan 39 – 33 í hálfleik.
Stjarnan hóf seinni hálfleikinn af krafti og náðu fljótt 12 stiga forystu. Lánleysið elti Marco en hann nældi sér í sína fjórðu villu þegar 2 mínútur voru liðnar af fjórðungnum og sendi Jovan á vítalínuna. KFÍ treysti áfram á skot fyrir utan þrátt fyrir óskir þjálfara þeirra um að sækja að körfunni. Þegar mínúta lifði af 3. fjórðung þá höfðu leikmenn KFÍ reynt 23 þriggja stiga skot en einungis 18 skot innan þriggja stiga línunnar. Stjarnan náði mest 19 stiga forystu um miðjan fjórðunginn en með góðri baráttu kom KFÍ þeim mun niður í 12 stig fyrir lok hans. Renato var að spila ágætlega fyrir Stjörnuna en 2 af 14 stigum hans hingað til í leiknum komu eftir glæsilega ,,alley up“ sendingu frá Justin Shouse. Staðan 62 – 50 Stjörnunni í vil fyrir lokaátökin.
KFí byrjaði í svæðisvörn og gekk hún ágætlega framan af en þeim gekk sjálfum afar illa að skora og þar með að minnka forskot Stjörnunnar. Hins vegar virtist hafa losnað um Renato sem átti tvær tröllatroðslur í röð og það var nóg til þess að Shiran Þórisson tæki leikhlé fyrir KFÍ sem fóru aftur í maður á mann vörn eftir að hafa reynt svæði í 4 mínútur. Marco Milicevic fékk dæmdan á sig ruðning og þar með sína 5 villu um miðjan fjórðunginn, það var dýrt fyrir KFÍ að fá einungis rúmar 20 mínútur frá honum í kvöld þar sem hann var ógnandi og erfiður í teignum. Justin Shouse kórónaði góðan leik sinn í kvöld með því að setja tvo þrista og koma þar með muninum upp í 18 stig og slökkva vonir KFÍ um að komast inn í leikinn aftur. KFÍ gekk hins vegar ágætlega í lok leiksins og náðu að minnka muninn í 8 stig með flautukörfu frá D. Milosevic en nær komust þeir ekki og lokatölur 83-75 Stjörnunni í vil.
Stjarnan fagnar því þar með að ná tveimur góðum stigum gegn KFÍ í kvöld en Justin átti sinn besta leik í þó nokkurn tíma en hann skoraði 21 stig ásamt því að gefa 9 stoðsendingar og taka 6 fráköst. Eins var Renato Lindmets sterkur ásamt Guðjóni Lárussyni. Hjá KFÍ voru D. Milosevic og C. Schoen fremstir meðal jafningja í kvöld.
Kjartan Atli Kjartansson var ekki með Stjörnunni í kvöld en hann reif vöðva í kálfa á æfingu með liðinu í gær og er búist við því að hann verði fjarri góðu gamni næstu tvær vikurnar eða svo.
Heildarskor:
Stjarnan: Justin Shouse 21/6 fráköst/9 stoðsendingar, Renato Lindmets 20/6 fráköst, Marvin Valdimarsson 13, Jovan Zdravevski 11/11 fráköst, Guðjón Lárusson 10/5 fráköst, Daníel G. Guðmundsson 5, Ólafur Aron Ingvason 2, Fannar Freyr Helgason 1/4 fráköst, Dagur Kár Jónsson 0, Christopher Sófus Cannon 0, Magnús Guðmundsson 0, Sigurbjörn Ottó Björnsson 0.
KFÍ: Darco Milosevic 18/4 fráköst, Craig Schoen 16, Carl Josey 12/5 fráköst, Marco Milicevic 12, Richard McNutt 7/7 fráköst, Nebojsa Knezevic 5, Ari Gylfason 5, Daníel Þór Midgley 0, Gautur Arnar Guðjónsson 0, Pance Ilievski 0.
Dómarar: Georg Andersen, Jóhann Gunnar Guðmundsson
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski – [email protected] – Justin Shouse átti góðan dag í liði Stjörnunnar.
Umfjöllun: BSB




