HomeBónus deildinBónus deild kvennaStjarnan og Tindastóll með bakið upp að vegg

Stjarnan og Tindastóll með bakið upp að vegg

Tveir leikir fóru fram í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna í kvöld.

Njarðvík og Haukar eru komin í góða stöðu í úrslitakeppninni eftir örugga sigra í kvöld og leiða nú bæði einvígi sín 2-0. Haukar lögðu Stjörnuna að velli með 87 stigum gegn 70 í Garðabæ, á meðan Njarðvík vann sannfærandi 30 stiga sigur á Tindastóli á útivelli, þar sem lokatölur urðu 58-88.

Bæði lið þurfa nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér sæti í undanúrslitum deildarinnar þar sem vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram. Stjarnan og Tindastóll standa frammi fyrir erfiðu verkefni og verða að vinna næstu leiki sína til að halda lífi í voninni um áframhaldandi þátttöku í úrslitakeppninni í ár.

Tölfræði leikja

Fréttir
- Auglýsing -