HomeBónus deildinBónus deild karlaStjarnan og Grindavík í undanúrslit

Stjarnan og Grindavík í undanúrslit

Stjarnan tryggði sér sæti í undanúrslitum Bónus deildarinnar með gífurlega dramatískum sigri á KR í Vesturbænum. Leikurinn var hnífjafn og spennandi og þurfti tær framlengingar til að knýja fram úrslit. Stjörnumenn sýndu mikla seiglu á lokakaflanum og unnu að lokum þriggja stiga sigur, 115-118. Þar með vinnur Stjarnan einvígið 3-1 og sendir KR-inga í sumarfrí eftir eftirminnilegan baráttuleik í Meistaravöllum.

Grindavík fylgdi fordæmi Garðbæinga og tryggði sömuleiðis sitt sæti í undanúrslitum með því að leggja Njarðvík að velli á útivelli. Grindvíkingar höfðu frumkvæðið stærstan hluta leiksins og sigruðu að lokum með sjö stigum, 84-91. Með sigrinum vinnur Grindavík einvígið samanlagt 3-1. Fyrir vikið eru Stjarnan og Grindavík komin í hóp með Tindastól í undanúrslitin, en baráttan um Íslandsmeistaratitilinn heldur áfram að harðna.

Tölfræði leikja

Fréttir
- Auglýsing -