spot_img
HomeFréttirStjarnan með sinn þriðja sigur

Stjarnan með sinn þriðja sigur

 

Stjörnukonur tóku á móti Val í 4. umferð Domino’s deildar kvenna í Ásgarði í kvöld. Fyrir leikinn höfðu heimakonur unnið tvo leiki og tapað einum, en gestirnir höfðu aftur á móti tapað öllum sínum þremur leikjum.

 

Leikurinn var jafn til að byrja með, og einkenndist helst af sóknarmistökum. Hinar bandarísku Dani Rodriguez í liði Stjörnunnar og Mia Loyd hjá Val drógu vagninn í fyrsta leikhluta og skoraði Rodriguez 8 stig í fyrsta leikhluta og Loyd 6. Staðan 18-13 eftir fyrsta, þar sem Stjarnan seig fram úr á síðustu mínútunum.

 

Stjörnukonur náðu að halda fimm stiga forskoti mest allan annan leikhluta, og voru átta stigum yfir þegar ein sekúnda lifði af fyrri hálfleik. Þá var brotið á Miu Loyd í skoti nær miðju en þriggja stiga línunni, afar klaufalegt hjá heimakonum. Mia fékk að launum þrjú víti sem hún nýtti og staðan 36-31 í hálfleik.

 

Stjörnukonur sigu fram úr í þriðja leikhluta. Þrátt fyrir mistök hér og þar náðu þær upp flottu boltaflæði á köflum og í vörninni þvinguðu þær Valskonur oft í erfið skot eða tapaða bolta. Fyrir lokafjórðunginn hafði Stjarnan ellefu stiga forskot, 56-45.

 

Stjörnukonur virtust ætla að halda uppteknum hætti í fjórða leikhluta og héldu gestunum í þægilegri fjarlægð lengst af. Um miðbik lokaleikhlutans náðu Valsarar þó að sýna klærnar og eftir nokkur góð stopp voru gestirnir skyndilega komnir inn í leikinn á ný. Mia Loyd fór þar fremst í flokki og raðaði niður stigunum og munurinn orðinn fjögur stig þegar um tvær og hálf mínúta lifðu af leiknum. Þá sögðu heimakonur hins vegar hingað og ekki lengra, og hreinlega skelltu í lás í vörninni. Valur skoraði ekki stig þessar síðustu tvær og hálfa mínútu og Stjarnan fagnaði góðum sigri, 71-62.

 

Stjörnukonur áttu flottan leik í seinni hálfleik, náðu oft góðu flæði í sóknarleikinn í þriðja leikhluta og risastórum stoppum þegar Valskonur minnkuðu muninn í fjögur stig. Svo virðist sem Dani Rodriguez smellpassi inn í liðið bæði inni á vellinum og utan hans. Rodriguez var frábær í kvöld, með 16 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar, grátlega nálægt þrennunni! Valskonur gerðu vel að halda sér inni í leiknum þegar stutt var eftir, en eftir það virtist blaðran sprungin. Mia Loyd skoraði 32 stig og tók 14 fráköst fyrir Val í kvöld en enginn annar leikmaður skoraði yfir 10 stig.

 

Pétur Már Sigurðsson þjálfari Stjörnunnar var að vonum ánægður með sitt lið: “Þetta var svolítið leikur mistakanna í fyrri hálfleik, en við komum vel inn í þann seinni og þó við höfum kannski ekki oft náð mjög góðum sóknum í fjórða að þá náðum við mikilvægum stoppum á réttum augnablikum. Þetta var bara baráttusigur sem ég er mjög ánægður með en auðvitað er fullt af leikjum eftir, ég er samt mjög ánægður með þetta í kvöld”.

 

Umfjöllun, viðtöl / Elías Karl Guðmundsson

Myndir / Tomasz Kolodziejski

 

Tölfræði leiks

Myndasafn 

Fréttir
- Auglýsing -