spot_img
HomeFréttirStjarnan með sigur í Ljónagryfjunni

Stjarnan með sigur í Ljónagryfjunni

 

Tveir leikir fóru fram í kvöld í Dominos deild karla og þrír í 1. deild karla. Úrslit kvöldsins í deild þeirra bestu nokkuð eftir bókinni þar sem að bæði Þór frá Þorlákshöfn og Stjarnan unnu sína leiki.

 

Stærstu fréttir kvöldsins eru koma þó kannski úr leikmannahópi Njarðvíkur. Innkoma Stefan Bonneau var hreint stórkostleg, þegar að leik lauk var kappinn búinn að skora 28 stig á aðeins 23 mínútum spiluðum. Einnig var gaman að sjá Pál Kristinnsson láta hendurnar standa fram úr ermum aftur fyrir Njarðvík, en það er þónokkuð síðan að áhangendur voru að reiða sig á slík framlög frá honum síðast.

 

 

Úrslit kvöldsins:

 

Dominos deild karla

Haukar 77 – 82 Þór frá Þorlákshöfn 

Njarðvík 83 – 94 Stjarnan 

 

1. deild karla

Vestri 69 – 92 Hamar 

Ármann 86 – 104 FSU 

Valur 89 – 101 Fjölnir 

Fréttir
- Auglýsing -