Stjarnan sigruðu Þór Þorlákshöfn í úrslitaleik Lengjubikars karla í Iðu á Selfossi í dag. Al'lonzo Coleman var afkastamestur í liði Stjörnunar með 16 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar og Marvin Valdimarsson bætti við 15 stigum, 6 fráköstum og 3 stoðsendingum. Hjá Þór var Vance Michael Hall með 18 stig og 3 stoðsendingur og auk þess var Ragnar Ágúst Nathanaelsson með 10 stig, 15 fráköst og 3 varin skot.
Fram að leik dagsins höfðu Þórsarar verið ósigraðir en Stjarnan hafði betur í leik dagsins með 14 stigum. Stjarnan skoraði síðustu 6 stigin í fyrsta leikhluta og komust 8 stigum yfir.
Í öðrum leikhluta fóru Þórsarar að sýna sitt rétta andlit og tóku 11-0 kafla og komust með því 1 stigi yfir. Justin Shouse fékk aðvörun fyrir leikaraskap og náði svo að næla sér í tæknivillu undir lok leikhlutans á innan við mínútu kafla, eða tvær Stjörnu sóknir í röð.
Það var svo í þriðja leikhlutanum sem Stjörnumenn gerðu útaf við leikinn en þeir sigruðu leikhlutann með 10 stigum eftir að 7-0 kafla síðustu 2 mínúturnar. Þórsarar mættu þeim mun sterkari í fjórða leikhluta en náðu ekki en Stjarnan sigraði hann þó með 2 stigum og bikarinn því á leið í Garðabæinn.
MVP: Marvin Valdimarsson (15 stig / 6 fráköst / 3 stoðsendingar / 2 varin skot / 3 stolna bolta)
Klapp á bakið: Halldór Garðar átti ágætis dag en hann er að spila sinn fyrsta leik eftir erfið ökklameiðsl í leiknum gegn Tindastóli í 8 liða úrslitunum síðasta þriðjudag.
Fylgist með: Magnús Bjarki er snúinn aftur til Stjörnunar eftir að hafa verið á láni hjá ÍA. Ljóst er að mínúturnar á Skaganum eru að skila sér og hann ætlar að standa sig í úrvalsdeildinni.




