HomeFréttirStjarnan/KFG Íslandsmeistarar í 12. flokki karla

Stjarnan/KFG Íslandsmeistarar í 12. flokki karla

Stjarnan/KFG urðu á dögunum Íslandsmeistarar í 12. flokki karla eftir sigur á Selfossi í hrikalega spennandi úrslitarænu. Selfoss vann fyrsta leikinn í Vallaskóla en Stjarnan/KFG jafnaði metin í Ásgarði, og tryggði sér svo titilinn með 87-101 sigri í oddaleik í Vallaskóla. Þjálfarar liðsins eru Ingi Þór Steinþórsson, Ilija Omrcen og Bogi Sigurbjörnsson.

Hér fyrir ofan má sjá mynd af sigurliðinu eftir að titillinn var í höfn. Jakob Kári Leifsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 14,8 stigum, 8,5 fráköstum og 8 stoðsendingum í leikjunum.

Við óskum Stjörnunni/KFG innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -