Á dögunum mættust Stjarnan og Valur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í 10. flokki drengja. Stjarnan vann fyrsta leikinn í Ásgarði og tryggði sér svo titilinn með sigri í öðrum leiknum sem fór fram á Hlíðarenda, en honum lauk með sigri Stjörnunnar 65-101. Þjálfarar liðsins eru Ilija Omrcen og Ögmundur Árni Sveinsson.
Baltasar Torfi Hlynsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 22 stigum, 5 fráköstum og 7 stoðsendingum. Með þessum úrslitum urðu Garðbæingar Íslandsmeistarar í þessum flokki og óskum við þeim til hamingju með árangurinn.
Mynd / KKÍ




