Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao lögðu Girona í spennuleik í ACB deildinni á Spáni í dag, 79-83.
Á tæpum 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær sjö stigum, sex fráköstum, þremur stoðsendingum, tveimur stolnum boltum og þremur vörðum skotum. Á lokasekúndum þessa spennandi leiks var hann mikilvægur liðinu, þar sem hann setti næst síðustu körfu þeirra í leiknum.
Bilbao eru eftir leikinn í 10.-12. sætinu með 43 stig líkt og Girona og Breogan.




