spot_img
HomeFréttirSterkur sigur gegn Hollandi

Sterkur sigur gegn Hollandi

Undir 16 ára drengjalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumóti í Skopje í Makedóníu.

Eftir að hafa tapað fyrstu þremur leikjum mótsins náði liðið loks í sigur í dag gegn Hollandi, 69-82.

Stigahæstir fyrir Ísland í dag voru Steinar Rafnarson og Benóní Andrason með 18 stig hvor. Þeim næstur var Jóhannes Hallgrímsson með 13 stig.

Tölfræði leiks

Lokaleikur Íslands í riðlakeppni mótsins er á morgun þriðjudag gegn Kósovó.

Upptaka af leiknum

Fréttir
- Auglýsing -