HomeLandsliðinEuroBasket 2027Sterkur portúgalskur hópur sem mætir Íslandi kl. 19:30 í Ólafssal annað kvöld

Sterkur portúgalskur hópur sem mætir Íslandi kl. 19:30 í Ólafssal annað kvöld

Ísland tekur á móti Portúgal kl. 19:30 annað kvöld í Ólafssal í undankeppni EuroBasket 2027. Frítt er á leikinn í boði Lengjunnar á meðan húsrúm leyfir og má því búast við nokkrum fjölda stuðningmanna liðsins á pallana í Hafnarfirði.

Þar sem Ísland og Portúgal eru í þriggja liða riðil með Serbíu hefur Portúgal ekki enn leikið í þessum öðrum glugga keppninnar. Þær tilkynntu þó á dögunum hvaða 14 leikmenn koma til greina hjá þeim fyrir leik morgundagsins, en hann er að finna hér.

Portúgalski hópurinn sem mætir til leiks í Ólafssal er skipaður leikmönnum sem búa yfir miklum hraða, leikskilningi og líkamlegum styrk sem reyndist íslenska liðinu um megn í fyrri leiknum í nóvember. Þegar horft er á leikmannalistann sést fljótt að hjarta liðsins slær í bakvarðastöðunum þar sem Joana Soeiro (SL Benfica) fer fremst í flokki. Hún er leikstjórnandi sem stýrir öllu spili liðsins af mikilli yfirvegun og er sérstaklega hættuleg í að finna samherja sína í opnum svæðum, þótt hún hafi einbeitt sér meira að uppspili en eigin stigaskorun í fyrri viðureigninni. Með henni í bakvarðasveitinni eru leikmenn eins og Maria Joao Correia (SL Benfica) og Raquel Laneiro (Alter Enersun Al-Qázeres Extremadura) sem geta báðar refsað harkalega fyrir utan þriggja stiga línuna ef vörnin gefur þeim minnsta svigrúm. Þessi samsetning gerir það að verkum að andstæðingar Portúgals geta aldrei einbeitt sér aðeins að því að verja teiginn því skotógnin að utan er stöðug.

Raquel Laneiro lék á sínum tíma fyrir Njarðvík og Fjölni hér á landi

Líkamlegur styrkur liðsins undir körfunni er annar stór þáttur sem Ísland þarf að klást við en þar eru Sofia da Silva (Maccabi Karmiel Beit Hakerm) og Lavinia Silva (Oaklands Wolves) lykilpóstar. Sofia er gríðarlega reynslumikil og notar líkama sinn vel til að vinna stöður í teignum en hún var einmitt ein af þeim sem stjórnuðu frákastabaráttunni í 30 stiga sigri þeirra í nóvember. Mariana Silva (Imortal BC) og Carolina Cruz (Jolly Basket Livorno) bæta svo við hæð og breidd í framherjastöðunum sem gerir Portúgal kleift að spila mjög aggressíva vörn yfir allan völlinn. Sú vörn er hönnuð til að þreyta andstæðinginn og neyða fram mistök sem leikmenn á borð við Simone Costa (Sporting CP) og Josephine Filipe (Alter Enersun Al-Qázeres Extremadura) eru fljótar að nýta sér í hraðaupphlaupum. Aðrir mikilvægir hlekkir í þessari öflugu liðsheild eru Sara Guerreiro (BC Marburg), Ines Ramos (Alter Enersun Al-Qázeres Extremadura) og Marcia da Costa (GDESSA Barreiro), sem geta allar á góðum degi skilað miklu framlagi.

Sara Guerreiro

Þegar rýnt er í tölfræðina úr fyrri leiknum, sem lauk með 100-70 sigri Portúgal, sést að Sara Guerreiro var atkvæðamest þeirra portúgölsku með 16 stig og frábæra skotnýtingu. Fast á hæla henni komu Maria Bettencourt Correia og Marcia da Costa með 15 stig hvor, en Correia stýrði leiknum af öryggi og spilaði rúmar 25 mínútur. Ana Carolina Rodrigues (TARR KSC Szekszard) átti einnig mjög góðan leik með 13 stig og 4 stoðsendingar, á meðan Sofia da Silva sýndi mátt sinn undir körfunni með því að skora 10 stig og taka 9 fráköst. Þessi dreifing á stigaskori sýnir glöggt þá miklu breidd sem Maianca Umabano (GDESSA) og hinar stelpurnar færa liðinu, en þær geta haldið uppi háu tempói í 40 mínútur án þess að gæði leiksins minnki.

Hjá íslenska liðinu í þeim leik var Sara Rún Hinriksdóttir algjör lykilmaður og skoraði 19 stig á þeim 30 mínútum sem hún spilaði. Rebekka Steingrímsdóttir átti sömuleiðis glæsilegan leik og skoraði 16 stig með fullkominni nýtingu innan teigs, en hún nýtti öll sex skot sín. Danielle Rodriguez bætti við 14 stigum og Isabella Sigurðardóttir barðist hetjulega í fráköstunum þar sem hún tók 8 fráköst í leiknum.

Þrátt fyrir fína frammistöðu þessara leikmanna vantaði meiri dýpt í stigaskorið til að halda í við Portúgal, sem refsaði grimmilega fyrir hvern einasta tapaða bolta. Fyrir leikinn í Ólafssal snýst verkefnið um að fækka þessum mistökum og reyna að hægja á leikstjórn Soeiro og félaga. Ef Íslandi tekst að loka á auðveld stig eftir tapaða bolta og standa í hárinu á portúgölsku risunum í frákastabaráttunni, þá er möguleiki á mun jafnari leik í Ólafssal.

Fréttir
- Auglýsing -