Steinar Arons hefur verið ráðinn nýr aðalþjálfari körfuknattleiksliðs Hrunamanna. Félagið tilkynnti þetta formlega í morgun.
Steinar býr yfir yfirgripsmikilli reynslu úr íslenskum körfuknattleik. Sem leikmaður á hann að baki feril með Haukum, Leikni, Ármanni, ÍA og FSU. Þá hefur hann einnig starfað sem þjálfari meistaraflokks Hauka.
Stjórn Hrunamanna lýsir yfir gríðarlegri ánægju með ráðninguna og væntir mikils af samstarfinu við nýjan þjálfara á komandi tímabili.
Uppfært
Steinar er að sjálfsögðu að fara að gifta sig, en ekki taka við Hrunamönnum. Hrunamenn eru ekki með lið þessa stundina. Fréttin var hluti af steggjun hans sem fram fer í dag. Þann 11. júlí næstkomandi mun Steinar ganga að eiga Jódísi Bóasdóttur við hátíðlega athöfn hjá sýslumanninum í Kópavogi. Karfan vill nota tækifærið og fyrirfram óska Steinari og Jódísi til hamingju með daginn og ástina.





