Körfuknattleiksdeild ÍR hefur ráðið Steinar Arason til liðs við Jón Arnar Ingvarsson í þjálfarateymi liðsins til næstu tveggja ára. Steinar mun gegna hlutverki aðstoðarþjálfara liðsins. Steinar Ararson spilaði á sínum tíma rúmlega 100 leiki í efstu deild með ÍR og þekkir því vel til hjá liðinu. Steinar var spilandi aðstoðarþjálfari hjá Breiðablik á síðasta tímabili í 1. deildinni og spilaði þar 19 leiki með rúmlega 10 stig að meðaltali og 2,4 fráköst. Fréttatilkynning frá Körfuknattleiksdeild ÍR má finna hér fyrir neðan.
"Mikil ánægja ríkir í herbúðum ÍR-inga í Breiðholtinu en stjórn Körfuknattleiksdeildar ÍR hefur náð
samkomulagi við ÍR-inginn Steinar Arason um að gegna aðstoðarþjálfarastöðu meistaraflokks karla
næstkomandi tvö tímabil. Þar mun hann starfa með nýráðnum aðalþjálfara liðsins, Jóni Arnari Ingvarssyni".




