spot_img
HomeFréttirStefnt að kvennaliði á Króknum tímabilið 2012-2013

Stefnt að kvennaliði á Króknum tímabilið 2012-2013

 
Á fundi körfuknattleiksdeildar Tindastóls á dögunum var ákveðið að stefna á þátttöku meistaraflokks kvenna í Íslandsmótinu á nýjan leik. Fyrirhugað er að fyrsta keppnisár liðsins verði tímabilið 2012-2013 en Tindastóll hélt síðast úti kvennaliði leiktíðina 2007-2008. Karfan.is setti sig í samband við Karl Jónsson sem er unglingaráðsmaður á Króknum en þessi ákvörðun var tekin á sameiginlegum fundi unglingaráðs og stjórnar KKD Tindastóls.
,,Við sjáum fram á að afrakstur á uppbyggingu stúlknaflokkanna okkar gæti mögulega verið í hættu ef við stígum ekki þetta skref. Við höfum verið í markvissri uppbyggingu allra síðustu ár og vorum m.a. með stúlknaátak 2008 sem skilaði okkur góðum fjölda af stúlkum í körfuboltann,” sagði Karl í samtali við Karfan.is.
 
,,Þessar stelpur verða að hafa að einhverju að stefna eins og strákarnir og ef við bjóðum ekki upp á meistaraflokk kvenna eins og karla þá eigum við það á hættu að skemma það sem við höfum verið að gera,” sagði Karl og kvað Sauðkrækinga spennta fyrir þessu verkefni.
 
,,Þetta kemur til með að auka kostnað fyrir deildina en fólk lítur bara á það sem sjálfsagðan hlut og það verður bara unnið fyrir þeim kostnaði eins og öllu öðru hér.”
 
Mynd/ Karl Jónsson boðar kvennalið á Króknum
 
Fréttir
- Auglýsing -