HomeNeðri deildir1. deild karlaStefnir á að fara aftur í ræturnar með því að byggja upp...

Stefnir á að fara aftur í ræturnar með því að byggja upp sterkan kjarna af heimamönnum

Skallagrímur hefur gert þriggja ára ráðningarsamning við Pálma Þór Sævarsson sem aðalþjálfara meistaraflokks karla. Pálmi er Borgnesingum vel kunnugur, en hann lék með félaginu frá ungu ári og þar til hann lagði skóna á hilluna árið 2008. Hann hefur jafnframt komið mikið að stjórnarstörfum og þjálfun hjá deildinni, en hann stýrði meistaraflokki síðast árin 2010 til 2014 og kom liðinu þá upp í úrvalsdeild.

Pálmi segist spenntur fyrir tækifærinu, en neisti hafi kviknað þegar hann kom að nokkrum leikjum með liðinu í vor. Hann stefnir á að fara aftur í ræturnar með því að byggja upp sterkan kjarna af heimamönnum og styðja við bakið á þeim leikmönnum sem fyrir eru með því að gefa þeim stærri hlutverk. Hans helstu styrkleikar séu að búa til samheldna liðsheild og segir hann stefnuna setta á öflugan varnarleik og skemmtilegan liðsbolta.

Markmið komandi tímabils er að sjá leikmennina þroskast og taka aukna ábyrgð, auk þess sem stefnt er á sæti í efri hluta deildarinnar og góða stemningu bæði innan sem utan vallar. Til lengri tíma litið er það yfirlýst markmið deildarinnar og Pálma að koma Skallagrími aftur í hóp þeirra bestu, og að liðið verði komið í efstu deild þegar nýtt íþróttahús rís í Borgarnesi.

Fréttir
- Auglýsing -