Í kvöld mættust lið ÍA og Grindavíkur í AvAir höllinni á Akranesi. Þetta var fyrsti heimaleikur ÍA á nýju ári og vonir með að Skagamenn næðu að snúa við slæmu gengi. Skagmenn tefldu fram nýjum bandarískum leikmanni Darryl L. Morsell sem kom til liðsins eftir að Keflvíkingar létu hann frá sér fyrir áramótin.
Það var töluverð eftirvænting að sjá hvernig hann myndi passa inní ÍA liðið og næði að hjálpa því að komast á sigurbraut. Það var vel mætt í AvAir höllina og stemning á pöllunum í upphafi leiks. Það var jafnræði með liðunum í fyrsta leikhluta og bæði liðin að hitta ágætlega, Staðan eftir fyrsta leikhluta var 23 – 25 Grindavík í vil. Annar leikhluti var á svipuðum nótum, nokkuð jafnræði var með liðunum og þau bæði að hitta nokkuð vel.
sókninni og voru yfir í hálfleik 49 – 45.
Þriðji leikhlutinn einkenndist af meiri barning og hittni liðanna ekki nærri jafn góð. Skagmenn héldu forystunni út þennan leikhluta 70 – 66 og útlit fyrir spennandi fjórða leikhluta. Það varð raunin þar sem Grindvíkingar gerðu harða atlögu að Skagamönnum sem náðu þó að svara fyrir sig.
Staðan 77 – 75 þegar rétt 5 mínútur voru eftir að leiknum. Þá komumst Grindvíkingar yfir og þegar staðan var 79 – 82 og rétt um 2:30 mín voru eftir var umdeilt atvik þar sem Skagamönnum fannst mjög á sig hallaði í dómgæslu og fengu á sig tvær tæknivillur fyrir mótmæli, Grindvíkingar fengu því 5 vítaskot og komust yfir 79 – 86. Skagamenn gerðu góða atlögu að því að jafna leikinn í lokinn en Grindvíkingar náðu að halda forystunni út leikinn og sigruðu að lokum 91 – 94.
Hjá heimamönnum var Darryl L. Morsell var með 22 stig / 10 fráköst, Josip Barnjak með 21 stig / 30 í framlag, Ilija Dokovic 16 stig og Styrmir Jónasson var með 12 stig.
Hjá gestunum var Khalil Shabazz með 25 stig, Deandre Kane með 17 stig, Daniel Mortensen með 15 stig / 8 fráköst og Jordan Semple með 12 stig,
Athyglisvert að segja frá því að:
– Grindvíkingar voru einungis með 9 leikmenn á leikskýrslu
– Þetta var fyrsti heimaleikur ÍA á nýju ári
-Bæði liðin voru með 51% skotnýtingu í tveggjastiga
– Grindavík hitti fleiri vítum (28) en skotum utan af velli (27)
– Victor Bafutto er kominn aftur til ÍA þar sem hann leysir af Gojko Zudzum sem er meiddur
-Styrmir Jónasson var annar í kjörinu á íþróttamanni Akraness 2025, til hamingju Styrmir










Umfjöllun / Jón Þór
Myndir / Jónas H.




