Í öðrum glugga undankeppni HM 2027 vann Ísland einn leik og tapaði einum líkt og í þeim fyrsta.
Ísland hefur því það sem af er keppni unnið tvo leiki og tapað tveimur, en aðeins einn gluggi er eftir. Hann mun fara fram í sumar er Ísland tekur á móti Ítalíu heima þann 2. júlí áður en riðillinn klárast með leik gegn Bretlandi ytra þremur dögum seinna 5. júlí.
Staðan í riðil Íslands eftir þessa fyrstu tvo glugga er því þannig að Ítalía er í efsta sætinu með þrjá sigra, Litháen er í öðru með innbyrðis á Ísland og tvo sigra og Ísland er í þriðja sætinu einnig með tvo sigra. Bretland er í neðsta sætinu, því eina sem fer ekki áfram í næsta fasa keppninnar, með einn sigur.

Það er því ljóst að þrátt fyrir að hafa gengið afar vel það sem af er keppni, með sigra gegn Ítalíu úti og Litháen heima, þarf Ísland að ná í sigur í sumar til þess að fá að halda áfram, hvort sem það verður gegn Ítalíu heima í Reykjavík eða í útileiknum gegn Bretlandi.





