HomeNeðri deildir1. deild karlaSrdjan Stojanovic til Snæfells í tvíþætt hlutverk

Srdjan Stojanovic til Snæfells í tvíþætt hlutverk

Snæfell hefur gengið frá samningi við Srdjan Stojanovic fyrir komandi tímabil, en hann mun gegna tvíþættu hlutverki hjá félaginu.

Auk þess að spila með meistaraflokki karla mun Srdjan taka að sér þjálfun þriggja yngri flokka, sjá um morgunæfingar og gegna lykilhlutverki í þróun ungra leikmanna í Stykkishólmi. Srdjan kemur með mikla reynslu inn í starfið en hann hefur fjórum sinnum á ferlinum farið með lið upp í efstu deild.

Gunnlaugur Smárason, þjálfari meistaraflokks karla, segir að þegar stjórn yngri flokka leitaði til sín hafi fyrsta símtalið verið til umboðsmannsins Mirkó, sem hóf atvinnumannaferil sinn á sínum tíma hjá Snæfelli. Mirkó benti á Srdjan og líst Snæfellingum afar vel á að fá hann til félagsins, bæði sem styrkingu fyrir meistaraflokkinn og sem frábæra fyrirmynd fyrir ungu leikmennina.

Fréttir
- Auglýsing -