spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaSrdan yfirgefur Selfoss

Srdan yfirgefur Selfoss

Srdan Stojanovic hefur yfirgefið fyrstu deildar lið Selfoss samkvæmt heimildum Körfunnar.

Srdan kom til liðsins fyrir yfirstandandi tímabil og hefur skilað 21 stigi, 6 fráköstum og 6 stoðsendingum að meðaltali í leik það sem af er, en Selfoss situr í 4. sæti deildarinnar með 8 stig líkt og Hrunamenn og Ármann.

Fyrst kom Srdan til Íslands árið 2018 til þess að leika með Fjölni og var hjá þeim allt til ársins 2020. Tímabilið þar á eftir 2020-21 lék hann með Þór Akureyri.

Fréttir
- Auglýsing -