Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt en nú er að verða komin nokkuð endanleg mynd á úrslitakeppnina í deidinni. Eitt lið getur enn tryggt sér sæti í úrslitakeppninni en það er Phoenix Suns. Austurdeildin er lokuð og Milwaukee misstu naumlega af sæti í úrslitakeppninni þrátt fyrir sigur í nótt.
Þá eru San Antonio Spurs búnir að vinna vesturströndina og hafa því heimaleikjaréttin þeim megin í úrslitakeppninni en Miami getur enn orðið austurstrandarmeistari en það eru Bulls sem í augnablikinu tróna á toppnum.
Milwaukee 92-86 Toronto
Monta Ellis gerði 17 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar í leiknum en hann kom til Bucks á miðri leiktíð frá Golden State og var nær því að komast í úrslitakeppnina með Bucks en það hafðist ekki að þessu sinni. James Johnson var svo stigahæstur í liði Raptors með 22 stig og 13 fráköst.
Önnur úrslit næturinnar:
Washington 101-73 Charlotte
Indiana 103-97 Detroit
New Jersey 87-105 Philadelphia
Memphis 109-101 Cleveland
San Antonio 124-89 Portland
Staðan í deildinni
STANDINGS | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|