spot_img
HomeFréttirSpurs og Hornets á flugi: Spurs með átta í röð

Spurs og Hornets á flugi: Spurs með átta í röð

 
Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. San Antonio Spurs og New Orleans Hornets bættu þá sigri ofan á sigurgöngur sínar. Spurs með átta leiki í röð og Hornets með sjö leiki í röð. San Antonio tóku á móti New York á heimavelli þar sem lokatölur voru 101-92 Spurs í vil. Tim Duncan og Tony Parker lönduð báðir tvennu í leiknum, báðir með 21 stig og Duncan 16 fráköst að auki og Parker með 13 stoðsendingar. Raymond Felton gerði 23 stig og gaf 7 stoðsendingar hjá gestunum í Knicks.
Atlanta 59-100 New Orleans
Fjarvera Al Horford vegna meiðsla kom bersýnilega í ljós hjá Hawks í nótt og fengu þeir skell á heimavelli. Chris Paul var stigahæstur í liði gestanna með 16 stig og 8 stoðsendingar en Jamal Crawford var stigahæstur hjá Atlanta með 14 stig í þessu 41 stiga tapi.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
New Jersey 89-74 Detroit
Orlando 112-72 Toronto
Washington 91-109 Phoenix
Boston 110-86 Utah
Cleveland 88-102 Milwaukee
Memphis 115-110 Houston
Denver 97-107 Lakers
Golden State 119-112 Sacramento
 
Mynd/ Duncan og félagar bifast ekki í toppsæti vesturstrandarinnar
 
Fréttir
- Auglýsing -