Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem San Antonio Spurs lutu í lægra haldi gegn Portland á útivelli. Þetta var fimmti heimasigur Porland í röð gegn San Antonio. Þrátt fyrir tapið í nótt eru Spurs enn á toppi vesturstrandarinnar en Porland er í áttunda sæti.
Portland 99-86 San Antonio
LaMarcus Aldridge fór á kostum í liði Portland og skoraði 40 stig í leiknum ásamt því að taka 11 fráköst. Argentínumaðurinn Manu Ginobili gerði 17 stig hjá Spurs og tók 4 fráköst.
New Orleans 97-89 Washington
Jason Smith gerði 20 stig í liði Hornets en hjá Wizards var Nick Young með 30 stig.
Sacramento 90-95 Boston
Ray Allen var stigahæstur hjá Celtics með 22 stig en hjá Kings voru þeir DeMarcus Cousins og Tyreke Evans báðir með 20 stig.
Lakers 114-106 Houston
Kobe Bryant var með myndarlega tvennu, 32 stig og 11 stoðsendingar. Spánverjinn Pau Gasol var ekki með síðri tvennu, 26 stig og 16 fráköst og Lamar Odom slóst í tvennuhópinn með 20 stig og 20 fráköst. Þrír byrjunarliðsmenn Lakers því með dúndurframmistöðu. Kevin Martin var stigahæstur í liði gestanna með 30 stig.
Mynd/ LaMarcus Aldridge gerði Spurs lífið leitt í nótt.





