HomeFréttirSpennutryllir í Ljónagryfjunni: Njarðvík leiðir 1-0

Spennutryllir í Ljónagryfjunni: Njarðvík leiðir 1-0

Njarðvík og Snæfell mættust í fyrsta leik í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna á heimavelli þeirra Njarðvíkinga í kvöld. Snæfellingar byrjuðu mun betur í kvöld og skoruðu grimmt í byrjun leiks en þær skoruðu úr fyrstu 7 sóknum liðsins sem skilaði þeim 6 stiga forskoti snemma leiks 8-14.
Áfram hélt sóknarleikur þeirra að skila góðum körfum og voru þær ávallt skrefi á undan Njarðvík í öllum aðgerðum sem skilaði þeim 18-27  forskoti eftir fyrsta leikhluta. Njarðvíkingar mættu hins vegar mun grimmari í leikhluta tvö og minnkuðu muninn jafnt og þétt og eftir 4mín. leik í leikhluta 2 voru þær komnar yfir 32-31 þar sem Shanae Baker-Brice og Lele Hardy fóru hamförum. Á þessum tímapunkti spiluðu Njarðvík 2-3 svæði og 2-2-1 pressu sem Snæfell áttu í erfiðleikum með. Liðin skiptust síðan á að setja góðar körfur fram að leikhléi, en Njarðvík komst yfir með flottri þriggjastiga flautukörfu hjá Lele Hardy sem setti boltann beint ofaní úr horninu. 47-46 hálfleikstölur. Í fyrri hálfleik skiptust liðin 9 sinnum að hafa forskot á hitt liðið.
 
Kieraah Marlow átti skínandi hálfleik en hún skilaði 17 stigum 5 fráköstum og 4 stoðsendingum, einnig átti hin unga Hildur Björg Kjartansdóttir flottan hálfleik 10 stig og 3 fráköst. Hildur Sigurðardóttir 9 stig 7 fráköst.
Hjá Njarðvík var Lele Hardy með 20 stig (4/4 í þriggja)  7 fráköst, Shanae Baker Price 14 stig 5 fráköst og 5 stoðsendingar. Einnig kom Ingibjörg Elva vel inn og setti 6stig og 3 stoðsendingar.
 
Seinni hálfleikur var eins og sá fyrri bæði lið að berjast út í eitt og gáfu ekkert eftir. Njarðvík byrjaði hinsvegar betur og komust í 55-48 áður en Hildur Sig. setti niður stóran þrist og minnkaði muninn í 4 stig. Njarðvík hélt þessum 4-7 stiga mun meira og minna út leikhlutann. Eitthvað riðlaðist leikskipulag Snæfellinga því á skömmum tíma komst Njarðvík í 11 stiga mun 68-57 þegar um 2mín voru eftir af 3.leikhluta. Snæfell endaði leikhlutann betur og náðu að minnka muninn í 68-62 fyrir lokaleikhlutan.
 
Snæfellingar komu sterkari inn í lokahlutann og með góðri spilamennsku náðu þær að minnka muninn í 75-74 og 5 mín eftir af leiknum. Á þessum tímapunkti sat Lele Hardy á bekknum hjá Njarðvík en hún fékk högg á hné. Hardy snéri aftur á gólfið þegar 4mín lifðu af leiknum og fór strax að skila til síns lið. Þegar 2mín. voru eftir var staðan 80-78 og mikill stemmning í húsinu og mikill barátta inná vellinum. Ingibjörg Elva setti stóra körfu og kom Njarðvík í 85-80 þegar 52sek voru eftir, en Snæfell neitaði að gefast upp og settu næstu tvær körfur þar sem Jordan Murphree og Hildur Kjartans voru að verkum og staðan 85-84 og aðeins 20sek eftir. Hildur Sig braut strax á Shanae Baker-Brice og fékk sína 5.villu og þurfti að yfirgefa völlinn. Shanae setti hins vegar bara annað vítið ofaní og kom Njarðvík í 86-84 og Ingi Þór tekur leikhlé þegar 17sek eftir. Snæfellingar fengu tvö góð opin skot sem rötuðu ekki rétta leið og Lele náði góðu frákasti og strax brotið á henni og 6 sek eftir. Lele setti fyrsta vítið niður og staðan 87-84, misnotaði seinna vítið þar sem Jordan Murphree náði frákastinu náði að senda á Björgu Einarsdóttur sem fékk ágætis þriggjastigaskot en það geigaði og Njarðvík vann því góðan sigur á góðu Snæfells liði sem börðust vel í kvöld.
Lokastaða 87-84
 
Bestar hjá Njarðvík
Lele Hardy 32 stig 14 fráköst
Shanae Baker Price 25 stig – 8 fráköst og 8 stoðsendingar
Ingibjörg Elva 14 stig og 5 fráköst
 
Hjá Snæfell
Kieraah Marlow 35 stig – 9 fráköst og 5 stoðsendingar,
Jordan Lee Murphree 19 stig – 10 fráköst og 5 stoðsendingar
Hildur Sig 12 stig og 12 fráköst
Hildur Kjartans 14 stig og 8 fráköst
 
Mynd/ Eyþór Sæm – www.vf.is – Hart barist í Ljónagryfjunni.
Umfjöllun/ AMG  
Fréttir
- Auglýsing -