spot_img
HomeFréttirSpennandi leikir á Icelandic Glacial mótinu í dag

Spennandi leikir á Icelandic Glacial mótinu í dag

 

Þórsarar í Þorlákshöfn halda mót í samstarfi við Ícelandic Glacial fjórða árið í röð í september.  Mótið fer fram þessa dagana en ein umferð fer fram í dag. Að þessu sinni eru það Grindavík, Njarðvík og Stjarnan sem taka þátt í mótinu ásamt heimamönnum.

Mótið fór af stað síðasta miðvikudag þegar Þór Þ og Stjarnan náðu í sigra. Mótið heldur svo áfram í Þorlákshöfn í dag og því kjörið fyrir körfuboltaáhugamenn að skella sér í laugardagsbíltúr. Mótinu lýkur svo á þriðjudag með tveimur leikjum.

Úrslit og dagskrá mótsins:

Miðvikudagur 19. september:

18:00    Þór Þ 78–74 Njarðvík
20:00    Stjarnan 86–79 Grindavík

Laugardagur 22. september:

14:00    Njarðvík – Stjarnan
16:00    Þór Þ – Grindavík

Þriðjudagur 25. september:

18:00    Þór Þ – Stjarnan
20:00    Grindavík – Njarðvík

Fréttir
- Auglýsing -