Laugardaginn 4. apríl 2026 verða spennandi körfuboltabúðir haldnar í Stykkishólmi fyrir hressa krakka.
Það eru engir aðrir en stjörnurnar Haiden Palmer og Aytor Alberto sem leiða búðirnar af fagmennsku og metnaði. Boðið er upp á æfingar fyrir 1.–3. bekk og 4.–8. bekk á aðeins 4000 krónur. Þetta er einstakt tækifæri til að læra af þeim bestu, bæta tæknina og hafa gaman. Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á [email protected].





