Úrslitakeppni 1. deildar karla fór af stað af miklum krafti í kvöld, en vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit.
KV sótti dýrmætan sigur gegn Fjölni og Sindri hafði betur gegn Snæfelli í hörkuleik. Þá sýndi Selfoss mikinn styrk með því að leggja Hauka að velli í sínu einvígi. Baráttan um laust sæti í Bónus deildinni er því opin og lofar góðu fyrir framhaldið.
Úrslit kvöldsins
- Sindri 105 – 92 Snæfell (Ice Lagoon höllin)
- Haukar 78 – 81 Selfoss (Ólafssalur)
- Fjölnir 85 – 97 KV (Dalhús)





