Í kvöld fara fram tveir mikilvægir leikir í undanúrslitum 1. deildar kvenna í körfubolta.
Fjölnir tekur á móti Þór Akureyri í Grafarvogi klukkan 18:00, en Fjölniskonur leiða einvígið 1–0. Síðar um kvöldið, klukkan 19:15, mætast Selfoss og Hamar/Þór.
Hamar/Þór berst fyrir lífi sínu í deildinni og reynir að verja sæti sitt í Bónus deildinni, á meðan hin þrjú liðin stefna á að vinna sig upp úr fyrstu deildinni. Hamar/Þór vann fyrsta leikinn og getur með sigri í kvöld fært sig skrefi nær úrslitaeinvíginu. Munurinn á liðunum í vetur var lítill í deildarkeppninni, þar sem Þór Ak. og Fjölnir enduðu jöfn í öðru og þriðja sæti.
Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitum um laust pláss í efstu deild að ári.
Leikir kvöldsins
18:00: Fjölnir – Þór Ak.
- Staðan í einvígi: 1–0 fyrir Fjölni.
19:15: Selfoss – Hamar/Þór
- Staðan í einvígi: 1–0 fyrir Hamar/Þór.




