Það voru Spánverjar sem tryggðu sér sæti í úrslitaleik Ólympíuleikanna í körfubolta karla með sigri á Rússum í dag. Rússar byrjuðu leikinn betur og höfðu 11 stiga forskot í hálfleik, 31-20. Spánverjar mættu hins vegar mjög vel stemmdir til seinni háflleiks og höfðu á endanum 8 stiga sigur, 67-59. Eins og tölurnar gefa til kynna var varnarleikur beggja liða í fyrirúmi.
Það var Pau Gasol sem fór fyrir Spánverjum með 16 stig og 12 fráköst í leiknum en næstir voru Jose Calderon með 14 stig og Marc Gasol með 11 stig. Hjá Rússum var Sasha Kaun með 14 stig en næstir voru Andrei Kirilenko og Anton Ponkrashov með 10 stig hvor en Kirilenko bætti einnig við 8 fráköstum.
Seinni undanúrslitaleikurinn milli bandaríkjanna og Argentínu fer fram klukkan 20:20 í kvöld og er sýndur í beinni útsendingu á RÚV