Þann 10 nóvember 1996 var kvikmyndin Space Jam frumsýnd, en í myndinni var lifandi leikurum skeytt saman við tölvugerðar persónur Looney Tunes, þar sem að í aðalhlutverki voru Michael Jordan og Kalli Kanína (e. Bugs Bunny). Fyrir utan Jordan í myndinni voru einnig körfuknattleiksleikmennirnir Larry Bird, Charles Barkley, Patrick Ewing, Muggsy Bogues, Larry Johnson, Shawn Bradley, Vlade Divac, Cedric Ceballos, Danny Ainge, A.C. Green, Charles Oakley, Derek Harper, Jeff Malone, Anthony Miller, Horace Grant, Steve Kerr, Luc Longley, Scottie Pippen, Brian Shaw og Bill Wennington svo einhverjir séu nefndir.
Til þess að fagna 20 ára afmæli myndarinnar munu einhver kvikmyndahús vestan hafs taka myndina til tímabundinna sýninga á afmælinu. Nú hvetjum við bæði þá sem að hafa tækifærið og hafa ekki séð myndina eindregið til þess að nýta sér það, sem og íslensk kvikmyndahús til þess að gera slíkt hið sama.
Þó aðrar körfuboltamyndir hafi verið gerðar í gegnum árin, virðist Space Jam alveg einstaklega vinsæl. Bæði vegna þess að það er Michael Jordan sem að fer með aðalhlutverkið og að hún kom út á hátindi ferils hans. Einnig kannski vegna þess að hún hlaut einróma lof gagnrýnenda.
Lengi hefur verið talað um það að gera framhald á myndinni. Þá með þeim körfuknattleiksmanni sem að hentaði best í hlutverk bjargvættsins sem að Jordan lék í þeirri upphaflegu. Margir höfðu gert því í skóna að þar væri leikmaður Cleveland Cavaliers, Lebron James, nánast sjálfvalinn í hlutverkið. Jordan var þó ekki á því þegar að hann var spurður út í málið í haust, sagði að það hentaði frekar leikmanni Los Angeles Clippers, Blake Griffin, að leika aðalhlutverkið í myndinni.
Hérna er svar Jordan:
LeBron James as the star of "Space Jam 2"? MJ has other ideas _x1f914_ (via lashmiller/Instagram)https://t.co/Ub4Cuo4P6w
— Bleacher Report (@BleacherReport) August 2, 2016
Hérna er stikla úr Space Jam:




