Þórsurum hefur borist býsna sterkur liðsstyrkur fyrir komandi átök í Domino´s deildinni í körfubolta. Nemanja Sovic hefur gengið til liðs við félagið en hann lék síðast með liði ÍR og var þar einn af þeirra lykilmönnum á síðasta tímabili. www.hafnarfrettir.is greina frá.
Á vef Hafnarfrétta segir einnig:
Nemanja Sovic er 35 ára íslenskur ríkisborgari og skoraði 13 stig að meðaltali í leik fyrir Breiðhyltinga og tók þar einnig 7 fráköst að meðaltali í leik.
Sovic er mjög góð viðbót við lið Þórs en liðið er á fullu þessa dagana við að slípa saman sterkum hópi fyrir átök komandi tímabils í Domino´s deildinni.