HomeFréttirSópurinn hefur ekki sést í nýja fyrirkomulaginu

Sópurinn hefur ekki sést í nýja fyrirkomulaginu

 
Staðan í úrslitaeinvígi Keflavíkur og Njarðvíkur í Iceland Express deild kvenna er 2-0 Keflavík í vil eftir 64-67 sigur Keflavíkur í Ljónagryfjunni í gærkvöldi. Sópurinn er kominn á loft og spurning hvort hann verði brúkaður á föstudagskvöld þegar Keflavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Ef svo yrði þá væri það í fyrsta sinn sem liði væri sópað út í úrslitum síðan núverandi keppnisfyrirkomulag tók gildi í efstu deild kvenna.
Að lokinni leiktíðinni 2008 var efstu deild kvenna breytt með þeim hætti að eftir tvöfalda umferð var deildinni skipt upp í A og B riðil og sex lið komust í úrslitakeppnina. Haukar urðu Íslandsmeistarar á fyrsta ári eftir sigur í oddaleik gegn KR og KR varð Íslandsmeistari árið eftir með sigri í oddaleik gegn Hamri. Sópurinn hefur því ekki fengið að fara á loft í lokaúrslitum þessa nýja keppnisfyrirkomulags en síðast var hann notaður árið 2008 þegar Keflavík sópaði út KR 3-0, þá var annað fyrirkomulag á Íslandsmótinu eins og áður segir.
 
Alls hefur það svo gerst 10 sinnum síðan árið 1993, þegar úrslitakeppni kvenna hóf göngu sína, að lokaeinvígi hafi endað með 3-0 sigri, er ellefta skiptið í uppsiglingu?
 
Fréttir
- Auglýsing -