Borgnesingar urðu á dögunum fyrir blóðtöku er ljóst varð að bakvörðurinn Sólrún Sæmundsdóttir myndi ekki leika með liðinu í vetur. Þetta staðfesti hún í samtali við Karfan.is í dag.
Sólrún er tvítugur bakvöður sem er uppalin hjá KR. Hún hefur leikið með Skallagrím síðustu tvö tímabil. Sólrún var gríðarlega mikilvæg fyrir lið Skallagríms sem vann 1. deild kvenna árið 2016 en þá var hún með 13 stig og 3 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Sólrún glímdi hinsvegar við meiðsli á síðasta tímabili sem kom í veg fyrir að hún gæti beitt sér að fullu og lék hún ekkert með liðinu eftir áramót. Hún sagði í samtali við Karfan.is að hún hafði tekið ákvörðun um að taka sér frí frá körfuboltaiðkun í bili að minnsta kosti.
Aðalástæðan eru meiðslin sem hún varð fyrir á síðasta tímabili og því ljóst að hún mun ekki leika körfubolta á næstunni. Aðspurð um hvort hún séi fyrir sér hvenær hún kæmi til baka svaraði Sólrún: „Hvenær og hvort ég byrji aftur er enn óljóst“.




