Lokaumferð deildarkeppni Bónus deildar kvenna fór fram í kvöld. Haukar og KR mættust á Ólafssal í leik sem skar úr um hvaða lið myndi enda sem deildarmeistari.
Haukar unnu leikinn með fimmtán stiga mun, 82-67, og tryggðu sér titilinn að leik loknum.
Karfan spjallaði við Sólrúnu Ingu Gísladóttur leikmann Hauka eftir leik í Ólafssal sem á afmæli í dag, en hún skilaði 13 stigum á 15 mínútum spiluðum.





