Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings voru í kvöld að landa rándýrum stigum í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Solna mætti á heimavöll LF Basket en með sigri í kvöld hefði LF getað jafnað Sundsvall Dragons á toppi deildarinnar. Þeim varð ekki kápan úr því klæðinu.
William Walker gerði sigurstig Solna í leiknum þegar 8 sekúndur voru til leiksloka og kom Solna í 85-86. LF náðu ekki að svara og því fór Solna heim með tvö stig þar sem Logi var stigahæstur í liði Solna með 19 stig, 3 fráköst, 3 stoðsendingar og 2 stolna bolta.
Eftir sigurinn í kvöld er Solna í 6. sæti deildarinnar með 22 stig en LF er í 2. sætinu með 32 stig.




