Það var boðið upp á sannkallaðan Suðurnesjaslag í HS Orku höllinni í kvöld þegar Grindavík og Njarðvík mættust í fyrsta leik sínum í efri hluta Bónus deildar kvenna.
Leikurinn var táknrænn fyrir það hversu jöfn deildin hefur verið í vetur, en honum lauk með naumum fjögurra stiga sigri gestanna úr Njarðvík, 66–70.
Karfan spjallaði við Þóreyju Teu Þorleifsdóttur leikmann Grindavíkur eftir leik í HS orku höllinni.





