Laugdælir/Uppsveitir og KFG mættust á dögunum í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um sæti í 1. deild karla í körfubolta.
Mikið var undir í leiknum en KFG leiddi einvígið 1–0 fyrir viðureignina eftir sigur í fyrsta leik. Leikurinn var hnífjafn og spennandi frá upphafi til enda þar sem liðin skiptust á að hafa yfirburði og gera áhlaup. Laugdælir/Uppsveitir virtust ætla að knýja fram oddaleik en Garðbæingar sýndu mikla seiglu, jöfnuðu metin á lokasekúndu venjulegs leiktíma og tryggðu sér að lokum sigurinn í framlengingu, 127–119.
KFG taplaust upp í 1. deildina
Með þessum sigri tryggði KFG sér 2–0 sigur í einvíginu og þar með sæti í 1. deild á næsta tímabili, en liðið fór taplaust í gegnum allt tímabilið. Hjá KFG fór Björn Skúli Birnisson fyrir sínum mönnum með 37 stig og 9 stoðsendingar, en Atli Hrafn Hjartarson bætti við 31 stigi og 9 fráköstum. Jakob Kári Leifsson átti einnig stórleik með 22 stig, 7 fráköst og 9 stoðsendingar í þessum mikilvæga sigri.
Í liði Laugdæla/Uppsveita var Clinton Bernard Wright Jr. atkvæðamestur með 26 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar. Matiss Longo Kasai Gunga skoraði 22 stig og Logi Smárason var nálægt þrennunni með 18 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar. Þrátt fyrir öfluga baráttu heimamanna var það KFG sem stóð uppi sem sigurvegari og fagnar verðskulduðu sæti í deild þeirra næstbestu.




