HomeNeðri deildir1. deild karlaSögulegt tækifæri fyrir Sindra í Smáranum í kvöld

Sögulegt tækifæri fyrir Sindra í Smáranum í kvöld

Í kvöld fer fram gríðarlega mikilvægur leikur í Smáranum þegar Breiðablik og Sindri mætast í fjórða leik úrslitaeinvígis fyrstu deildar karla í körfubolta. Staðan í einvíginu er 2-1 Sindra í vil og geta gestirnir frá Hornafirði því tryggt sér sigur í úrslitum og sæti í efstu deild með sigri í kvöld.

Fyrir Sindra er tækifærið sögulegt því með sigri tryggir liðið sig upp í Bónus deildina í fyrsta skipti í sögu félagsins. Það yrði risastórt skref fyrir körfuboltann á Höfn en á móti bíður þeirra erfitt verkefni gegn Breiðabliki sem ætlar sér að jafna metin og knýja fram þann fimmta. Búast má við rafmagnaðri stemningu í Kópavoginum þar sem annað liðið berst fyrir lífi sínu í úrslitakeppninni á meðan hitt liðið freistar þess að skrifa nýjan kafla í sína íþróttasögu.

Leikur kvöldsins

Fyrsta deild karla – Úrslit

Breiðablik Sindri – kl. 20:00

Fréttir
- Auglýsing -