HomeFréttirSöguleg tímamót í Smáranum þegar táknmálshópur Fylkis mætti til leiks

Söguleg tímamót í Smáranum þegar táknmálshópur Fylkis mætti til leiks

Fylkir sendi sjö lið skipuð börnum á aldrinum sex til níu ára á MB mót Breiðabliks síðustu helgi. Þótt mikil framþróun hafi verið sýnileg hjá öllum iðkendum félagsins yfir tímabilið bar hæst þau sögulegu tímamót að í fyrsta skipti í sögu félagsins mætti hópur heyrnarlausra barna til leiks á körfuboltamót.

Magnús þjálfari hópsins segir það hafa verið sérstaklega ánægjulegt að sjá táknmálsbörnin spreyta sig á sínu fyrsta móti. Hann telur þau hafa staðið sig með eindæmum vel og hlakkar til áframhaldandi starfs með hópnum í framtíðinni.

Mótið þótti lukkast vel í alla staði en Fylkismenn lýstu yfir ánægju með gott skipulag hjá mótshöldurum í Breiðabliki. Félagið fagnar þeim skrefum sem börnin hafa tekið á vellinum í vetur og telur mótið staðfesta þann mikla vöxt sem er í yngri flokkum deildarinnar.

Fréttir
- Auglýsing -