spot_img
HomeFréttirSöfnuðu rúmum 400.000 krónum til handa Rósu Jósefsdóttur

Söfnuðu rúmum 400.000 krónum til handa Rósu Jósefsdóttur

Styrktarleikur til handa Rósu Jósefsdóttur, bónda á Fjarðarhorni í Bæjarhreppi, fór fram í Borgarnesi á næstsíðasta degi ársins 2010. Rósa glímir við bráðahvítblæði og framundan er löng sjúkrahúsvist í Svíþjóð þar sem Rósa þarf að gangast undir mergskipti. 
Vösk sveit körfuboltamanna sem komið hefur við í Borgarnesi lagði söfnuninni lið og tók þátt í styrktarleiknum en myndasafn frá leiknum má sjá hér.
Alls söfnuðust 435.000 kr. á leiknum og var góð stemmning í fullu Fjósinu.
Á myndinni eru:
Efri röð frá vinstri: Pálmi Sævarsson ,Þórður Jónsson, Fannar Helgason, Pavel Ermolinski,Sigurður Þórarinsson,Valur Ingimundarson,Birgir Mikaelsson,Trausti Eiríksson,Bragi Magnússon,Páll Axel Vilbergsson, Þórður Jónsson,Gísli Einarsson,Eggert Jónsson og Finnur Jónsson sem skipulagði þetta.

Fremri röð frá vinstri:
Ari Gunnarsson,Helgi Pétur Magnússon,Pétur Sigurðsson,Eiður Sigurðsson Henning Henningsson,Hjörtur Hjartarson,Tómas Holton,Sigurður Elvar Þórólfsson,Valur Valsson,Egill Egilsson,Björn Bjarki Þorsteinsson og Sigmar Egilsson.
Myndir/ Sigga Leifs
Fréttir
- Auglýsing -