Inga Lea Ingadóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka og er því mætt aftur heim í Hafnarfjörðinn.
Inga Lea söðlaði um og gekk til liðs við Njarðvík í fyrra, þar sem hún varð einmitt Íslandsmeistari í vor eftir sigur gegn Haukum í úrslitaeinvíginu.
Inga Lea er 17 ára og 186 cm miðherji sem er uppalin hjá Haukum. Hún hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og er meðal annars í verkefnum með U18 landsliðinu í sumar. Auk þess að leika með meistaraflokki félagsins mun hún einnig spila með nýstofnuðu U-liði Hauka í 1. deildinni. Viktor þjálfari sagði endurkomu hennar gríðarlega kærkomana og undirstrikaði að hún væri stór hluti af framtíðaráformum félagsins.



