Snýr aftur í Val

Valur hefur samið við bakvörðinn Pablo Bertone um að leika með liðinu á nýjan leik á komandi tímabili.

Bertone er stuðningsmönnum Vals að góðu kunnur en hann lék með félaginu á tímabilunum 2021–2022 og 2022–2023 og varð þá bæði Íslands- og bikarmeistari með Hlíðarendaliðinu. Hann er reynslumikill og sannreyndur leikmaður hér á landi og fagna Valsmenn því að sjá hann aftur í rauðu og hvítu treyjunni.

Fréttir
- Auglýsing -