Snýr aftur heim

Hilmar Óli Jóhannsson hefur skrifað undir samning við Sindra og snýr aftur heim á Hornafjörð eftir eitt tímabil með Hetti. Þessi 17 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá félaginu og bætist nú í hóp margra ungra, heimamanna sem ætla að taka slaginn með Sindra í Bónusdeildinni í vetur.

Hjá Sindra ríkir mikil ánægja með að fá þennan efnilega leikmann aftur í raðirnar, en hann á að baki reynslu úr æfingahópum yngri landsliða Íslands. Hilmar hefur lagt mikið á sig við æfingar í sumar og mætir fullur metnaðar til að berjast fyrir sitt uppeldisfélag á stærsta sviði íslensks körfubolta.

Fréttir
- Auglýsing -