Rami Zriouil er genginn til liðs við Sindra á nýjan leik og mun spila með liðinu á komandi tímabili. Rami, sem er fæddur árið 2008, er uppalinn Hornfirðingur en hann lék með Hetti á Egilsstöðum á síðustu leiktíð.
Hjá Sindra fagna menn því mjög að fá þetta mikla körfuboltaefni aftur heim í hópinn sem hluta af þeirri vegferð að byggja liðið upp á ungum og uppöldum heimamönnum.



